Út er komin bókin „100% Fish – How smart seafood companies make better use of resources“ eftir Þór Sigfússon stofnanda Sjávarklasans. Útgefandi er Leete’s Island Books í Bandaríkjunum.

Í bókinni er fjallað um sjávarútvegsfyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki víða um heim sem eru að leiða grænu byltinguna í sjávarútvegi og stuðla að betri umgengni um auðlindir hafsins. Um leið er markmið höfundar að veita sjávarútveginum innblástur til að vera stöðugt vakandi fyrir tækifærum til að efla sjálfbærni.

Tekin eru dæmi m.a. af íslenskum fyrirtækjum sem hafa verið í fararbroddi á heimsvísu í betri nýtingu sjávarafurða og hvernig þau hafa tileinkað sér nýja tækni sem hefur bætt samkeppnisstöðu þeirra og gert þeim kleift að verða leiðandi í hringrásarhagkerfinu. Jafnframt er rætt við leiðtoga sjávarútvegsfyrirtækja víða um heim sem hafa tekið sjálfbærni og betri nýtingu traustum tökum.

Íslenski sjávarklasinn hefur í samstarfi við ýmsa aðila hérlendis hafið markvissa kynningu utan Íslands á mikilvægi þess að draga úr sóun í sjávarútvegi. Á meðan Íslendingar nýta allt að 90% af hverjum veiddum fiski eru margar þjóðir að henda hliðarafurðum sem nema allt að 30-40% af afla; verðmæt auðlind sem oftar endar sem landfylling eða er hent í sjóinn í öðrum löndum. Hér getur íslensk þekking og reynsla leitt til verulegrar minnkunar kolefnisspors sjávarútvegs um allan heim.

Það eru næg tækifæri fyrir sjávarútveginn til að verða leiðandi í sjálfbærni og kynna afurðir sínar sem þau matvæli sem hafa lægsta kolefnissporið og þar sem sjálfbærni og fullnýting eru leiðarljósin.

Hægt er að nálgast bókina á http://100fishbook.com

Nánari upplýsingar veitir julia@sjavarklasinn.is