Íslenski sjávarklasinn í samstarfi við fyrirtæki á Reykjanesi huga nú að undirbúningi græns sprotagarðs (eco-industrial park) í Helguvík. Sprotagarðurinn hefur fengið vinnuheitið Reykjanesklasinn. Markmið er að Reykjanesklasinn verði ekki rekinn í hagnaðarskyni (non-profit).
Áhugi er á að taka byggingar Norðuráls í Helguvík undir verkefnið. Stofnendur Reykjanesklasans hafa verið í viðræðum við Norðurál um kaup á húsum félagsins í Helguvík fyrir þessa starfsemi. Sem kunnugt er hafði Norðurál gert samkomulag við Fiskeldisfyrirtæki Samherja um sölu á byggingunni, fyrr á árinu, sem ekki varð úr.
Í Reykjanesklasanum verður sérstaklega leitað leiða til að fyrirtækin geti samnýtt auðlindir og stuðlað jafnframt að því að það sem fellur til hjá einu fyrirtæki geti orðið að nýtanlegri auðlind fyrir annað fyrirtæki í klasanum. Mikill áhugi er hjá sprotafyrirtækjum og aðilum á svæðinu fyrir verkefninu.
Erlendis hefur verið algengt að gömul verksmiðjuhús gangi í endurnýjun lífdaga og sé breytt í klasahús þar sem mörg fyrirtæki og sprotar vinna saman. Markmið Íslenska sjávarklasans er að nýta þá þekkingu sem klasinn hefur aflað sér við rekstur Húss sjávarklasans í Reykjavík og í Portland Maine til að þróa klasasamstarf á Reykjanesi. Töluverð eftirspurn hefur verið hjá minni fyrirtækjum og sprotum eftir stærra húsnæði til margvíslegrar framleiðslu en Sjávarklasinn hefur ekki getað boðið upp á slíkt. Helguvík er þannig ákjósanleg viðbót við starfsemi klasans.
Reykjanesklasinn mun bjóða stórum sem smáum fyrirtækjum aðstöðu til m.a. framleiðslu, samsetninga, rannsókna, ylræktar og eldis svo eitthvað sé nefnt. Staðsetning við alþjóðaflugvöll og Helguvíkurhöfn gefur aðstöðunni stóraukið vægi.
Markmið Reykjanesklasans er að efla samstarf og traust á milli fyrirtækja með það að markmiði að skapa verðmæti og áhugaverð störf, stuðla að bættri nýtingu auðlinda og betra umhverfi.