The Alaska Ocean Cluster er fjórði bandaríski klasinn sem verður einn af systraklösum Íslenska sjávarklasans í Bandaríkjunum. Justin Sternberg verkefnisstjóri hjá Alaska Ocean Cluster og Þór Sigfússon hjá Íslenska sjávarklasanum skrifuðu undir samstarfsyfirlýsingu í Húsi sjávarklasans í dag.
Hugmyndin að Alaska Ocean Cluster kviknaði hjá Bering Sea Fisherman Association eftir kynningu Íslenska sjávarklasans í Alaska árið 2013.
Í samstarfinu eru fyrir auk þeirra tveggja sem nefndir eru New England Ocean Cluster, New Bedford Ocean Cluster og Pacific Northwest Ocean Cluster.
Í yfirlýsingunni eru meðal annars sett sameiginleg markmið um að efla samstarf á milli frumkvöðla og fyrirtækja á milli Alaska og Íslands og að efla tengsl allra þeirra klasa sem tilheyra samstarfinu.
Nánari upplýsingar veita Berta Daníelsdóttir og Þór Sigfússon í síma 5776200