Við fengum nýlega stærsta styrk í sögu Sjávarklasans frá Builders Vision sem er bandarískur sjóður sem Lucas Walton, barnabarn Sam Waltons, stofnaði.

Þessi viðurkenning markar vendipunkt fyrir 100% Fish verkefnið og opnar ugglaust mörg tækifæri fyrir klasann til að að efla tengsl við fleiri góðgerðarsjóði og fjárfesta í Bandaríkjunum.

Alexandra Leeper, framkvæmdastjóri okkar, lýsir mikilvægi þessa stuðnings svona:
„Þessi styrkur er einstakt framlag til að auka umfang sýnar okkar á heimsvísu. Stuðningur Builders Vision mun flýta því markmiði okkar að gera 100% nýtingu fisks að alþjóðlegu viðmiði.“