BLUE NOVA VENTURES
Blue Nova er vísisjóður sem fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum í bláa hagkerfinu með mikla vaxtarmöguleika. Gríðarleg tækifæri felast í nýrri tækni í greininni og mun sjóðurinn vinna náið með frumkvöðlum sem takast á við stór verkefni á sviði sjávargagna og gervigreindar, sjávarlíftækni, nýsköpunar í sjávarútvegi og fiskeldi, sjálfbærum flutningi, orku úr hafi og öryggismálum.
Blue Nova byggir á sterkum grunni Sjávarklasans og vinnur í nánu samstarfi við klasann og systurklasa hans víðs vegar um heim til að finna og styðja við efnilegustu sprotafyrirtækin í bláa hagkerfinu.
Í gegnum þetta öfluga vistkerfi fá frumkvöðlar aðgengi að áratuga reynslu úr greininni og alþjóðlegum tengslum sem opna dyr að nýjum mörkuðum, samstarfsaðilum og fjárfestum. Blue Nova er fjárfestingararmur klasans og aðstoðar frumkvöðla við að umbreyta hugmyndum í leiðandi alþjóðleg fyrirtæki.