Íslenski sjávarklasinn og Marel hafa ákveðið að efla samskiptin og byggja enn frekar á styrkum stoðum árangursíkrar samvinnu en Marel er eitt af fyrstu fyrirtækjunum til að ganga til liðs við Íslenska sjávarklasann árið 2011. Aðilar stefna að samstarfi um aðstoð við sjávarafurðafyrirtæki á heimsvísu sem hafa metnað til að auka hringrás í sjávarútvegi en bætt tækni við vinnslu sjávarfangs getur haft jákvæð áhrif á sjálfbærni hafsins.
Í sameiningu munu Marel og Íslenski sjávarklasinn finna leiðir til að efla sprotastarfsemi sem snýr að tækniframförum í bláa hagkerfinu (blue ocean technology) og ekki síst tækni sem getur bætt nýtingu á hliðarafurðum sjávarfangs, sem enn eru urðaðar í mörgum löndum.