Í dag var fyrsta fulsupartí Íslandssögunnar haldið í Húsi sjávarklasans.
Gestir gæddu sér á dýrindis fiskipulsum sem eru hugarfóstur Loga í Hafinu og renndu þeim niður með fiskikollagen drykknum Collab frá Feel Iceland og Ölgerðinni.
Á meðal gesta var Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra og kunni hann vel að meta fulsuna. Feed the viking og Bifröst foods gáfu gestum einnig kynningu og smakk af sínum frábæru vörum.
Nýja Útvegsspilið var einnig til sýnis og vann heppinn gestur eitt eintak af því
Við þökkum öllum sem komu og nutu með okkur í dag.