Síðastu dagar í Sjávarklasanum hafa verið annasamir við móttöku gesta. Gestir frá Kyrrahafinu með sjávarútvegsráðherra Fiji í fararbroddi kynntu sér starfsemi klasans og voru ýmis tækifæri rædd. Gestir frá Frakklandi, Norðurlöndunum og Bandaríkjunum fengu einnig kynningu og ávalt vekur verkefnið 100% fish mikla athygli.
Fylkisstjóri Maine Janet T. Mills kom ásamt fylgdarliði ráðamanna í Portland en tilgangur hennar heimsóknar var að skoða Hús sjávarklasans í tilefni væntanlegrar opnunnar sambærilegs hús í Maine. Fylkisstjórinn hafði á orði hversu spennt hún væri fyrir því að sjá sambærilegt módel loksins verða að veruleika í Maine og þakkaði Íslenska sjávarklasanum fyrir að hafa komið með fullnýtingarhugsunina yfir hafið. Að heimsókn lokinni bauð hún öllum frumkvöðlum hússins upp á súpu og brauð með sér og heyrði hvað þeir höfðu að segja.