Sjávarklasanum var nýlega boðið að kynna starfsemi sína á ráðstefnunni Smart coastal areas: Resourcefulness and innovation in FLAG communities, sem haldin var í bænum Bantry á Írlandi. Eins og nafn ráðstefnunnar gefur til kynna var þar lögð megináhersla á að ræða snjallar lausnir fyrir strandbæi.
Fundinn sóttu hátt í 200 þátttakendur í svokölluðum FLAG verkefnum (e.Fisheries Local Action Groups), innan Evrópusambandsins, en markmið þeirra verkefna er að stuðla að nýsköpun og endurreisn svæða sem flest voru áður háð fiskveiðum.