Á fundinum Flutningalandið Ísland sem hópur klasafyrirtækja í flutninga- og hafnahópi Sjávarklasans og SA stóðu að, sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, að samfélagið væri orðið tilbúnara til þess að fara óhefðbundnar leiðir við uppbyggingu vegakerfisins – og vísaði þá til þess að aukinnar jákvæðni gætti gagnvart hugmyndum sem feli í sér einkaframkvæmdir og gjaldtöku í vegakerfinu.
Jón Gunnarsson, alþingismaður og fyrrverandi samgönguráðherra, ræddi hvernig hægt væri að gera stórátak í uppbyggingu vegakerfisins með því að taka ýmis stór og fjárfrek verkefni í samgönguáætlun út fyrir sviga og byggja þau upp.
Jón ræddi um að með þessu móti mætti ráðast strax í framkvæmdir við að bæta stofnleiðirnar út úr höfuðborginni, til Keflavíkur, austur fyrir Selfoss og vestur og norður. Framkvæmdirnar yrðu fjármagnaðar með veggjöldum.
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræddi mikilvægi þess að Íslendingar stæðu af myndarskap að uppbyggingu innviða og taldi hann mikið vanta þar upp á.
Berta Daníelsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans var fundarstjóri og spurði hún Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra hvort áherslubreytingar munu eiga sér stað undir hennar forystu? Bertu taldist svo til að nýr vegamálastjóri væri búin að standa í stefni Vegagerðarinnar í 98 daga og oft væri miðað við að stjórnendur hefði 100 daga til að gera breytingar. Bergþóra svaraði að það kæmu alltaf breytingar með nýju fólki og það væri raunin nú.
Ifor Williams klasasérfræðingur ræddi mikilvægi klasa og tók dæmi af sjávar- og flutningaklösum í öðrum löndum. Ifor sagði að helsta verkefni klasa væri að brjóta niður múra á milli ólíkra greina, tengja fólk saman og búa þannig til verðmæti.
Flutninga- og hafnahópur Sjávarklasans hefur sýnt með afgerandi hætti hversu brýnt er að ólíkir partar flutningakeðjunnar hittist og ræði markmið og leiðir til að efla Ísland sem flutningaland. Rétt eins og víða annars staðar er lítið samstarf á milli greina og þessu þarf að breyta. Hafnir eru góðar ef vegir liggja að þeim og jafnvel enn betri ef flughafnir tengjast þeim beint. Allir partar flutningakeðjunnar tengjast!