Dr. Þorbjörg Jensdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri IceMedico var valin frumkvöðull ársins 2016 á verðlaunaafhendingu sem Stjórnvísi stóð fyrir þriðjudaginn 12. apríl á Grand Hóteli Reykjavík. Þorbjörg er með aðsetur í frumkvölasetri Sjávarklasans.
Þau viðmið sem dómnefnd hefur við val á frumkvöðli ársins er meðal annars nýsköpun, stefna og árangur í starfi. Frumkvöðull ársins stuðlar að samkeppnisforskoti með skarpri framtíðarsýn og þekkingu á þörfum viðskiptavina og hefur góðan skilning á atvinnugreininni.
Leið Þorbjargar í starf frumkvöðuls og framkvæmdastjóra lág í gegnum doktorsnám í Danmörku og rannsóknir þeim tengdum á glerungseyðingu tanna. Þær rannsóknir leiddu af sér munnsogs-mola sem örvuðu munnvatnsframleiðslu um 20 falt án þess að eyða glerungi tannanna. Þorbjörg sá strax tækifærið og við tók vinna við að tryggja einkaleyfið víða um heim og koma vörunni á markað.
Síðasta haust flutti svo Þorbjörg aftur til Íslands þar sem hún hefur byggt upp fyrirtækið IceMedico og styrkt á sviði markaðssetningar og sölu auk hönnunar sem verður sífellt mikilvægari þáttur markaðssetningar.
Mikill markaður er fyrir vöru eins og HAp+ sem bætir lífsgæði fólks sem þjáist af munnþurrki. Styrkur HAp+ er fyrst og fremst sá að langvarandi notkun molanna skemmir ekki tennur. Um 400 lyf á Íslandi valda munnþurrki og hefur samstarf með fagfólki úr læknavísindunum reynst mjög gott til að byggja upp góða vöru og sterkt vörumerki, enda er varan upprunnin úr læknavísindum.
Ákvörðun dómnefndar byggir meðal annars á eftirfarandi lýsingu:
Af mikilli stefnufestu, áræðni og hugviti hefur þessi frumkvöðull byggt upp fyrirtækið IceMedico ehf. Frumkvöðullinn hefur sýnt mikla forystuhæfileika og er vísindamaðurinn að baki uppfinningu, sem HAp+ byggir á og eigandi einkaleyfis í fjölda landa. Frumkvöðullinn er sérfræðingur á sínu sviði og hefur mikla þekkingu og reynslu bæði hvað varðar vísindin og viðskiptin í kringum HAp+. Hann þekkir þarfir og væntingar viðskiptavinanna og er einnig virkur í fræða- og viðskiptasamfélaginu á þessu sviði.