Þann 20. október stóð Íslenski sjávarklasinn fyrir vefmálstofunni 100% rækja, þar sem saman komu aðilar úr atvinnulífinu, rannsakendur og aðrir hagaðilar til að ræða tækifæri til betri nýtingar á hliðarafurðum frá rækjuvinnslu.

Á vefmálstofunni voru flutt þrjú erindi um hagnýtar leiðir til að auka nýtingu rækju:

  • Kristian Ottesen, Royal Greenland, kynnti stefnu fyrirtækisins um umbreytingu á starfseminni.
  • Vigfús Rúnarsson, Primex Iceland, fjallaði um hvernig breyta má rækjuskel í verðmætar afurðir.
  • Judith Schuijs, Íslenska sjávarklasanum, kynnti hagnýtar leiðir til að hjálpa sjávarútvegsfyrirtækjum að komast hraðar í átt að 100% nýtingu.

Fjöldi skráninga barst víðs vegar að úr heiminum og komu þátttakendur frá yfir 20 löndum.

Þessi mikli alþjóðlegi áhugi endurspeglar vaxandi athygli á verðmætasköpun úr hliðarafurðum sjávarfangs og þeim tækifærum sem felast í að skapa meiri verðmæti úr sjávarauðlindum sem þegar eru nýttar.

Vefmálstofan var haldin sem hluti af verkefninu 100% rækja, sem er styrkt af Nordic Innovation. Að verkefninu standa meðal annars Royal Greenland, Primex Iceland, Íslenski sjávarklasinn, DryCess og Nofima.