Námið byggir á grunni námsbrautar Fisktækniskóla Íslands um hráefnisvinnslu, en þar að auki verður lögð mikil áhersla á vöruþróun, frumkvöðlaþjálfun, stofnun og rekstur fyrirtækja. Námið höfðar til fólks með reynslu af vinnumarkaði, sem hefur áhuga á nýsköpun og stefnir á vinnu eða rekstur eigin fyrirtækis innan bláa hagkerfisins. Lögð verður áhersla á kynningu á vörum og nýjum fyrirtækjum á hinum ýmsu sviðum sjávarútvegs og fiskeldis, allt frá vinnslu til vöruþróunar, markaðssetningu og sölu.
Áfangarnir sem eru kenndir eru:
- Bláa hagkerfið
- Umhverfismál
- Hráefni & vinnsla
- Gæðastjórnun & áætlanagerð
- Afurðaframleiðsla & vöruþróun
- Framkoma & þjónustuhönnun
- Stafrænar lausnir
- Sala&markaðsmál
- Fjármögnun & rekstur
- Verkefnastýring
- Nýsköpun & lokaverkefni
- Heimsóknir í nýsköpunarfyrirtæki
Haustönn hefst 14.september og er umsóknarfrestur til 7.sept.
Námsgjöld eru 18.000kr per önn
Skráning fer fram hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar gefur Sara Björk Guðmundsdóttir í síma 777-0148 eða sarabjork@sjavarklasinn.is