Hinn 14. nóvember nk mun Pacific Northwest Ocean Cluster (Sjávarklasinn á norðvesturströnd Bandaríkjanna) verða formlega stofnaður í húsakynnum Marel í Seattle. Þetta er þriðji systurklasi Sjávarklasans sem opnaður er í Bandaríkjunum en fyrir eru klasar í Massachusetts og Maine.
Í fyrirsvari fyrir klasann er Lára Hrönn Pétursdóttir sjávarútvegsfræðingur með 15+ ára sjávartengda reynslu meðal annars sem skipstjóri, stýrimaður og háseti. Lára kemur af fjölskyldu frumkvöðla í sjávarútveginum og hefur sjálf ásamt eiginmanni sínum, þrætt veg frumkvöðla á sviði upplýsingatækni og sjávarútvegs. Auk þess koma að klasanum fjöldi fyrirtækja og stofnana í Bandaríkjunum og á Íslandi. Upphaflegir bakhjarlar þessa verkefnis á Íslandi eru Íslandsbanki, Marel og Icelandair.
Eitt stærsta verkefni nýja klasans verður að hlúa að nýjum sprotafyrirtækjum sem tengjast sjávarútvegi og annarri hafsækinni starfsemi. Á norðvesturströnd Bandaríkjanna eru mörg fyrirtæki sem standa framarlega í sjávarútvegi í heiminum. Með stofnun klasans er ætlunin að vinna að því að tengja betur saman hefðbundinn sjávarútveg við bæði háskóla og nýsköpunarfyrirtæki eins og lögð hefur verið áhersla á í öðrum klösum.
Lára Hrönn Pétursdóttir:
Við finnum fyrir miklum áhuga á nýsköpun sem tengist sjávarútvegi á þessu svæði, til dæmis er stórt samstarfsverkefni Washington fylkis og Port of Seattle, WA maritime Blue, sem hefur það markmið að stór efla haf tengda starfsemi í fylkinu og þaðan kemur mikil velvild og áhugi gagnvart sjávarklasanum. Það eru líka tækifæri til að þess að efla samstarf fyrirtækja í öllum klösunum, bæði innan Bandaríkjanna og á Íslandi og verður það eitt af markmiðum okkar.
Nánari upplýsingar veitir: Lára Hrönn Pétursdóttir í síma +1-425-458-8237 eða á lara@pnwoceancluster.com
www.pnwoceancluster.com