Fimmtudaginn 28. júní síðastliðinn var haldinn fundur með menntahóp Íslenska sjávarklasans hjá Marel. Menntahópurinn samanstendur af fulltrúum þeirra háskóla, menntaskóla og annarra stofnana hér á landi sem bjóða upp á nám eða verkefni í sjávartengdum greinum. Aðdragandi fundarins var sá að undanfarna mánuði hefur sjávarklasinn unnið saman með þessum fulltrúum um hvernig megi hvetja fólk í nám í sjávartengdum greinum. Úr þeirri vinnu spruttu tvö verkefni sem eru komin nokkuð vel á veg og var staða þeirra verkefna kynnt af sumarstarfsfólki klasans.
Fundurinn gekk vel og komu fram góðar umræður um framhald verkefnanna meðal starfsmanna Marel og þeirra fulltrúa sem sátu fundinn. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af hópnum sem fylgdist ákafur með meðan á kynningunum stóð.