Út er komin ný Greining Sjávarklasans sem fjallar um fyrirsjáanlega endurnýjun á hluta íslenska fiskiskipaflotans. Þar segir meðal annars:
- Fyrirsjáanleg er endurnýjun á hluta íslenska fiskiskipaflotans sem kominn er til ára sinna. Fjárfestingar út gerðarinnar í viðgerðum og endurskipulagningu flotans eru jafnan stórar á mælikvarða íslensks atvinnulífs.
- Ætla má að 500 milljón króna fjárfesting í endurnýjun togara skili sér í a.m.k. 450-600 milljón króna veltuaukningu í hagkerfinu og skapi um 40 ársverk ef valin eru íslensk tæknifyrirtæki.
- Margar útgerðir beina við skiptum sínum til stórra tæknifyrirtækja sem annast geta alla þætti endurnýjunar. Með auknu samstarfi smærri tæknifyrirtækja á Íslandi má draga úr þeim viðskiptakostnaði sem fellur á útgerðir þegar verslað er við marga smærri aðila.
Greininguna má nálgast hér á vefnum undir Greining Sjávarklasans.