Gott flutninganet er undirstaða þess að atvinnulífið hér á landi nái að vaxa og eflast á komandi árum. Nýjar flugleiðir í til Kanada, í kjölfar þess að íslensk flugfélög fengu leyfi til að fljúga þangað, hafa leitt til þess að útflutningur á ferskum sjávarafurðum hefur margfaldast á tveimur árum. Gangi spár um vöxt flugferða hingað til lands eftir er ekki ólíklegt að árið 2030 muni 4,6 milljónir manna fara um Keflavíkurflugvöll og íslensk flugfélög starfræki áætlunarferðir til 100 áfangastaða með 34.000 flugferðir yfir árið. Þá er ekki ólíklegt að hafin verði bein áætlunarflug milli Keflavíkur og Asíu sem opnar á gríðarleg tækifæri í viðskiptum. Þetta er á meðal þess sem kom fram á ráðstefnu Sjávarklasans, Flutningar á Íslandi til 2030 í Hörpu síðastliðinn mánudag. Ráðstefnan lukkaðist vel en hana sátu ríflega 110 manns. Við hjá Íslenska sjávarklasanum þökkum fyrirlesurum og gestum kærlega fyrir og vonum að allir hafi notið vel. Óhætt er að segja að erindin hafi öll verið mjög áhugaverð, en hægt er að sækja glærur fyrirlesara hér.
- Stefna Íslands og aðgerðir til að efla flutninga – Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra
- Vegakerfið og atvinnulífið – Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri
- Ný sameiginleg stefna hafna – Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna
- Saman náum við árangri – Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa
- Samgöngustofa: Ný stofnun, áherslur og áskoranir – Halla Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri samhæfingarsviðs Samgöngustofu
- Samantekt: Framúrskarandi dæmi um stefnumörkun og samhæfingaraðgerðir – Haukur Már Gestsson, hagfræðingur Íslenska sjávarklasans
- Flutningar í nútíð og framtíð – Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
- Tækifæri Íslands í flugflutningum – Gunnar Már Sigurfinnsson, forstjóri Icelandair Cargo
- Framtíðaráskoranir í flutningum – Kristján M. Ólafsson, verkefnastjóri KPMG
- Öryggi á norðurhöfum: Ábyrgð og tækifæri Íslendinga – Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar
- Shipping in the Arctic – Jens Boye, flotastjóri Royal Arctic Line
- Samantekt – Heiðar Már Guðjónsson, hagfræðingur