Íslenski sjávarklasinn heimsótti nýverið Íslenska gámafélagið (IGF). Þessir aðilar ræddu meðal annars samstarf um endurvinnslu og hvernig auka mætti áhuga á endurvinnslu í sjávarútvegnum. Nokkrar áhugaverðar fyrirmyndir eru um samstarf í þróun endurvinnslu í sjávarútvegi eins og samstarf HB Granda, Sameyjar og IGF.
“Íslenskur sjávarútvegur á að vera í forystu á heimsvísu á þessu sviði eins og öðrum. Samstarf þessara aðila getur orðið góð fyrirmynd í þeim efnum”, segir Þór Sigfússon hjá Sjávarklasanum.
Á myndinni eru auk Þórs, Haukur Björnsson framkvæmdastjóri IGF og Auður Pétursdóttir sölustjóri IGF.