STÓRAR FRÉTTIR!!!
Við höfum undirritað viljayfirlýsingu (MoU) við Samtök þörungafélaga (AAI).
Við teljum að bæði örþörungar og stórþörungar hafi gríðarlega möguleika á Íslandi. Tækifærin til verðmætasköpunar eru raunveruleg, mikil og við erum rétt að byrja að sjá toppinn á ísjakanum. Nú þegar eru til frábær dæmi um nýsköpun og þróun á þessu sviði, en enn er margt órannsakað.
Þess vegna skiptir þetta samstarf okkur miklu máli. Samtök þörungafélaga á Íslandi vinna mikilvægt starf við að tengja saman fyrirtæki, stofnanir, háskóla og áhugafólk um þörunga um alla virðiskeðjuna á Íslandi, allt frá ræktun og rannsóknum til vinnslu, vöruþróunar og sjálfbærrar nýtingar. Markmið samtakanna er að styrkja rekstrarumhverfi þörungatengdrar starfsemi, efla þekkingu og vitund um greinina og tala fyrir hagsmunum hennar gagnvart stjórnvöldum og atvinnulífi.
Með þessu samstarfi viljum við styrkja tengslin við íslenska þörungasamfélagið og skapa fleiri tækifæri fyrir samstarf, nýsköpun og þróun innan greinarinnar. Ný tengsl, ný tækifæri og sterkari grunnur fyrir þörungatengd fyrirtæki og rannsakendur til að vaxa og þróast.
Við erum spennt fyrir samstarfinu og þeim tækifærum sem það getur skapað.