Hlemmur – Mathöll leitar að framúrskarandi markaðsstjóra. Markaðsstjóri hefur umsjón með markaðsmálum, viðburðahaldi og verkefnum tengdum daglegum rekstri mathallarinnar.
Starfslýsing
- Umsjón með markaðmálum, þ.m.t. samfélagsmiðlum.
- Skipulagning viðburða og útimarkaða.
- Samstarf og samskipti við kaupmenn.
- Samskipti við verktaka, þjónustuaðila og viðskiptavini.
- Önnur tilfallandi verkefni tengd daglegum rekstri.
Hæfniskröfur
- Haldbær reynsla og þekking á markaðsmálum og viðburðahaldi er krafa.
- Reynsla af rekstri er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórn og hæfni til að sinna mörgum verkefnum samtímis.
- Reynsla og þekking á markaðssetningu á samfélagsmiðlum.
- Áhugi á mat, matarmenningu og viðburðahaldi.
- Mikið sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Góð samskiptahæfni, tölvukunnátta og íslensku- og enskukunnátta.
Um er að ræða fullt starf. Gert er ráð fyrir að ráða í stöðuna snemmsumars og að viðkomandi hefji störf í sumar eða haust, eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2017.
Umsóknir berist á hlemmur@hlemmurmatholl.is. Allar frekari upplýsingar veitir Bjarki Vigfússon í síma 693 3958 / bjarki@hlemmurmatholl.is.