Síðastliðinn fimmtudag, sem hluta af Iceland Innovation Week, hélt Íslenski sjávarklasinn viðburðinn The Blue Table þar sem frumkvöðlar, fjárfestar og leiðtogar úr atvinnulífinu komu saman yfir hádegisverði til að ræða framtíð bláa hagkerfisins. Þar var rætt um þau fjölmörgu tækifæri sem bláa hagkerfið býður upp á og mikilvægi aukins samstarfs þvert á greinar til að nýta þau sem best.
Umræðurnar voru líflegar og skapaðist gott rými fyrir samtöl og tengslamyndun. Fólk sem hittist ekki endilega dags daglega fékk tækifæri til að ræða saman, hlusta og mynda ný tengsl. Fjárfestingar í bláa hagkerfinu voru meðal helstu umræðuefna, bæði sem mikilvægt tækifæri og nauðsyn fyrir framtíðina, og greinilegt var að mikill áhugi og bjartsýni ríkja um framtíð greinarinnar.
Aðalrétturinn var í boði Matorku, frábærs fyrirtækis í landeldi á bleikju, og borðið var skreytt með skeljum frá Aurora Abalone. Við þökkum Íslandsbanka og JBT Marel kærlega fyrir stuðninginn og fyrir að gera The Blue Table viðburðinn að veruleika.