Íslenski sjávarklasinn heimsótti nýlega Nelson í Nýja-Sjálandi, sem hluti af spennandi samstarfi við Moananui, klasann fyrir bláa hagkerfið í Nýja-Sjálandi. Heimsóknin var full af verðmætum fundum og kynningu á nýsköpun sem mótar sjálfbæra framtíð sjávarafurða og auðlinda hafsins.
100% Fish: From Scale to Tail
Kjarni heimsóknarinnar var vinnustofan 100% Fish: From Scale to Tail — sem var viðburður sem snerist um að auka virði hliðarstrauma fiskvinnslu. Vinnustofan leiddi saman frumkvöðla, rannsakendur og leiðtoga úr atvinnulífinu til að skoða lausnir og samtvinna reynslu frá Norðurlöndum og Kyrrahafssvæðinu. Sjá nánar hér.
Sem hluti af vinnustofunni héldum við einnig tvö Nordic Talks samtöl, sem er vettvangur fyrir opna umræðu og deila reynslu á milli Norrænna og kyrrahafslanda um sjálfbæra nýtingu auðlinda, hringrásarhagkerfi og nýsköpun í hafinu.
Sustainable Solutions Symposium
Auk vinnustofunnar sóttum við ráðstefnuna Sustainable Solutions Symposium, sem Bio Processing Alliance hélt. Þar var sýnt fram á rannsóknir og dæmi um nýtingu lífrænna auðlinda. Það var virkilega gagnlegt að sjá hvernig samstarf þvert á greinar stuðlar að aukinni nýsköpun á svæðinu.
Sérstaklega eftirminnilegt var að hitta teymið frá New Zealand King Salmon. Áhersla þeirra á fullnýtingu eldislaxa með þróun dýrafóðurs og snarl úr hliðarstraumum laxins endurspeglar kjarnamarkmið 100% Fisk verkefnisins. Aðferðir þeirra sýna hvernig megi umbreyta úrgangi í verðmæti.
Heimsóknir til rannsóknarstofnanna í bláa hagkerfinu

Cawthron Þörungarannsóknarmiðstöðin
Við fengum einnig tækifæri til að heimsækja helstu lykilaðila bláa hagkerfisins í Nelson:
Cawthron Institute – stærsta sjálfstæða vísindastofnun Nýja-Sjálands. Þar fengum við að skoða þörungarannsóknarstöð þeirra og kynnast betur rannsóknum á ræktun örþörunga, hagnýtri þörungafræði og lífvirkum efnum úr lífríkinu.
Plant & Food Research – Þverfagleg vísindamiðstöð sem vinnur að því að auka verðmæti úr fæðu og sjávarauðlindum í gegnum nýsköpun, m.a. með rannsóknum á gæðum sjávarfangs, lífvirkum efnum og sjálfbærum framleiðslukerfum.

Grænn kræklingur hjá Maclab
MacLab – leiðandi fyrirtæki í þróun lífvirkra efna úr kræklingi. Við fengum að skoða aðstöðuna þeirra og læra af reynslu þeirra í að koma vísindalegri nýsköpun á markað.
Efling alþjóðlegs samstarfs
Þessi heimsókn markaði skref í átt að öflugra alþjóðlegu samstarfi innan bláa hagkerfisins. Ísland í Norður-Atlantshafi og eyjar í Kyrrahafinu standa frammi fyrir svipuðum áskorunum og tækifærum þegar kemur að hringrásarnýtingu auðlinda, fiskeldi og sjávarlíftækni. Með samvinnu getum við hraðað nýsköpun og haft raunveruleg áhrif. Við erum nú að byggja á þessum tengslum með sameiginlegum frumkvöðlaverkefnum, tilraunaverkefnum og stuðningi við fyrirtæki sem stuðla að breytingum í hafinu – hvoru megin heimsins sem þau starfa.
Við erum djúpt þakklát Moananui og öllum þeim stofnunum sem tóku vel á móti okkur í heimsókninni. Orkan, opna hugarfarið og drifkrafturinn sem við fundum í Nelson mun veita okkur innblástur áfram í starfi okkar heima á Íslandi.
Þessi heimsókn var styrkt af Norrænu ráðherranefndinni í gegnum Nordic Talks verkefnið og af Þróunarsjóðnum fyrir heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hjá Utanríkisráðuneyti Íslands. Þeirra stuðningur gerði þetta dýrmæta samstarf mögulegt.