100% Fiskur verkefnið var kynnt í Eistlandi í síðustu viku á málþinginu Community-Led Local Development Seminar í Pärnu, sem FAMENET – Fisheries and Aquaculture Monitoring, Evaluation and Local Support Network stóð fyrir. Tilgangur viðburðarins var að koma saman staðbundnum aðgerðahópum í sjávarútvegi til að deila reynslu, efla samstarf og skoða nýstárlegar leiðir til að styðja við staðbundna þróun.
Benedek Regozci, sem er hluti af teymi okkar, var boðinn til að fjalla um hvernig samstarf og nýsköpun verða að veruleika í framkvæmd, með 100% Fish verkefnið og íslenska nýsköpunarumhverfið sem dæmi. Fyrirtækið hans, Havdis, er frábært dæmi um fullnýtingu sjávarafurða. Einnig má nefna nýtt samstarf okkar við Algae Association of Iceland sem sýnir hvernig samvinna er lykillinn að nýsköpun og uppbyggingu öflugs samfélags.
Það er alltaf ánægjulegt að kynnast öðrum samstarfsverkefnum og fá innsýn í nýsköpunarverkefni sem eru í gangi víða um Evrópu.