Íslenski sjávarklasinn hefur í gegnum tíðina tekið saman lista yfir þau sprotafyrirtæki sem eru að móta framtíð bláa hagkerfisins á Íslandi, svokallað Landslið sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu.
Fyrirtækin á listanum eiga það sameiginlegt að vera að þróa lausnir sem auka verðmætasköpun, bæta nýtingu auðlinda og styðja við sjálfbæra þróun í sjávarútvegi, fiskeldi, líftækni, hugbúnaði og matvælaframleiðslu.
Við erum stolt af því að kynna landsliðið 2026 og óskum öllum fyrirtækjunum innilega til hamingju með viðurkenninguna.