„Gríðarlegt magn af textíl endar á urðunarstöðum og mikið af því inniheldur plast. Á hverju ári hendir mannkynið um 92 milljónum tonna af textíl. Eftirspurn eftir textílvörum eykst samhliða auknum kaupmætti og fólksfjölgun.” – Nanna Lín.
Nanna Lín býður einnig upp á valkost við textílefni sem innihalda plast og stuðlar þannig að sjálfbærari tískuiðnaði. Eftirspurn eftir leðri fer sífellt vaxandi og því er mikilvægt að horfa til framtíðar. Gervileður og rúskinn eru textílefni sem að stórum hluta eru framleidd úr plasti og framleiðsla þeirra hefur veruleg neikvæð áhrif á umhverfið. Hugmynd Nönnu Línar er að nýta fiskleður til fatagerðar. Leðrið er framleitt úr fiskroði og sútað með trjábörk. Framleiðsla fyrirtækisins er ekki hafin enn sem komið er, en við hlökkum til að fylgjast með þróuninni.


