Í síðustu viku bauð North Marine Ingredients teyminu okkar í heimsókn í starfsstöð sína á Akranesi þar sem við fengum að kynnast starfsemi þeirra og nýjum vörum. North Marine Ingredients er líftæknifyrirtæki sem vinnur að 100% nýtingu með því að nota hliðarafurðir úr þorski til að framleiða kuldvirk ensím. Fyrirtækið hefur alltaf verið í sambandi við okkur og það er virkilega gaman að sjá það vaxa. Fyrirtækið er frábært dæmi um 100% Fish utilisation. Teymið er fullt af góðum hugmyndum og það er spennandi að fá að fylgjast með því.

Skrifstofur þeirra eru staðsettar í Breið nýsköpunarsetur, á Akranesi, nýsköpunarmiðstöð sem byggir á samstarfi, allt frá samvinnurými yfir í rannsóknaraðstöðu og FabLab, vinnuaðstöðu fyrir alla sem þurfa rými og verkfæri til að „gera hugmyndir að veruleika“.
Það er virkilega gaman að sjá svona frábært samfélag hafa byggst upp á síðustu fimm árum. Breið er frábært dæmi um hvernig góðar hugmyndir geta leitt til nýsköpunar og samstarfs í litlum sjávarbyggðum.

Við viljum þakka Thordur Bergsson og Bergur Benediktsson hjá North Marine Ingredients og Valdis Fjolnisdottir frá Breið fyrir að taka svona vel á móti okkur!