Íslenski sjávarklasinn hefur undirritað viljayfirlýsingu (MoU) við Pacific Islands Forum Fisheries Agency (FFA).

Markmið samstarfsins er að skoða hvernig hægt er að skapa meiri verðmæti úr aukaafurðum úr sjávarútvegi.

Á Íslandi hefur þetta meðal annars falist í því að vinna að fullnýtingu þorsk- og ýsuafurða. Á Kyrrahafssvæðinu, þar sem unnið er með mikið magn af túnfiski, eru mikil tækifæri til að skapa meiri verðmæti úr hráefni sem nú er lítið nýtt.

Þessi viljayfirlýsing byggir beint á áframhaldandi verkefnum okkar á Kyrrahafssvæðinu í gegnum Global Ocean Clusters in the Pacific. Markmiðið er að styrkja staðbundin vistkerfi, tengja fyrirtæki saman og skoða möguleika á klasasamstarfi og þróun á svæðinu.

Hægt er að lesa fréttatilkynninguna í heild sinni hér:
https://www.ffa.int/2026/04/ffa-and-iceland-ocean-cluster-partner-to-unlock-more-value-from-pacific-fisheries/