Fyrir tveimur vikum fór framkvæmdastjóri okkar, Alexandra Leeper, í ferð um Írland til að kynna sér þróun bláa lífhagkerfisins þar.
Í ferðinni heimsótti Alexandra Dublin, Cork, Galway, Limerick og Killybegs, þar sem hún fékk innsýn í vinnslu hvítfisks, lax og uppsjávarafla. Hún kynnti sér jafnframt verkefni sem snúa að nýtingu þörunga, lífhreinsun sjávarafurða (seafood biorefining) og samstarfi innan bláa lífhagkerfisins. Alexandra heimsótti einni Technological University of the Shannon (TUS) og Atlantic Technological University (ATU). Ferðin var skipulögð af BIM (Bord Iascaigh Mhara) og veitti dýrmæta innsýn í þau tækifæri og áskoranir sem blasa við í írsku bláu lífhagkerfi. Á Írlandi felast miklir möguleikar í auknu samstarfi sem getur stutt við sjálfbært blátt lífhagkerfi og skapað ný verðmæti.
Írland býr yfir víðtækri þekkingu á sviði lyfjafræði, líflækninga og lífvísinda. Enn sem komið er er samspil þessara greina og sjávarútvegs takmarkað. Hins vegar felast veruleg tækifæri í því að þróa einstakar og verðmætar afurðir úr sjávarauðlindum með auknu samstarfi við líflækningageirann.
Teymi BIM og Alexandra Leeper, 2026