Judith Schuijs og Clara Jégousse úr teymi Íslenska sjávarklasans kynntu nýlega 100% fiskur verkefnið á tveimur alþjóðlegum viðburðum.
Judith Schuijs, verkefnastjóri rannsókna hjá Íslenska sjávarklasanum, tók í síðustu viku þátt í fundi á vegum samtakanna Food Waste Free United (Stichting Samen Tegen Voedselverspilling) og hollenska sjávarútvegssambandsins Visfederatie. Á fundinum komu saman fulltrúar sjávarútvegsfyrirtækja í Hollandi sem kynntu fyrstu niðurstöður tilraunaverkefnis sem hefur það markmið að safna gögnum og fylgjast með matarsóun í hollenska sjávarútvegsgeiranum.
Judith kynnti starfsemi Íslenska sjávarklasans, 100% Fish verkefnið, áframhaldandi verkefni klasans og net systurhafklasa. Markmið kynningarinnar var að sýna hvernig hringrásarhagkerfið og nýsköpun í sjávarútvegi geta dregið úr sóun og skapað ný verðmæti úr auðlindum hafsins.
þessari viku tók Clara Jégousse, yfirrannsóknargreinandi hjá Íslenska sjávarklasanum, þátt í efnahagsráðstefnu sjávarútvegsins („Rendez-vous économique du secteur des pêches“) sem haldin var af MRC de La Côte-de-Gaspé í samstarfi við Canada Economic Development for Quebec Regions og Department of Economic Development, Innovation, and Energy.
Markmið ráðstefnunnar var að kynna fjölbreytt og nýstárleg verkefni sem tengjast efnahagslegri fjölbreytni, framtíðarþróun og hringrásarhagkerfinu. Clara kynnti 100% fiskur verkefni Íslenska sjávarklasans í upphafi viðburðarins og útskýrði hvernig verkefnið styður við aukna nýtingu sjávarauðlinda og hvetur til þróunar nýrra virðiskeðja.